Psalms 52

1Til söngstjórans. Maskíl eftir Davíð, 2þá er Dóeg Edómíti kom og sagði Sál frá og mælti til hans: Davíð er kominn í hús Ahímeleks. 3Hví stærir þú þig af vonskunni, harðstjóri? Miskunn Guðs varir alla daga! 4Tunga þín býr yfir skaðræði, eins og beittur rakhnífur, þú svikaforkur! 5Þú elskar illt meir en gott, lygi fremur en sannsögli. [Sela] 6Þú elskar hvert skaðræðisorð, þú fláráða tunga! 7Því mun og Guð brjóta þig niður fyrir fullt og allt, hrífa þig burt og draga þig út úr tjaldi þínu og uppræta þig úr landi lifenda. [Sela] 8Hinir réttlátu munu sjá það og óttast, og þeir munu hlæja að honum: 9,,Þetta er maðurinn, sem ekki gjörði Guð að vernd sinni, heldur treysti á hin miklu auðæfi sín og þrjóskaðist í illsku sinni.`` [ (Psalms 52:10) En ég er sem grænt olíutré í húsi Guðs, treysti á Guðs náð um aldur og ævi. ] [ (Psalms 52:11) Ég vil vegsama þig að eilífu, því að þú hefir því til vegar komið, kunngjöra fyrir augum þinna trúuðu, að nafn þitt sé gott. ]
Copyright information for Icelandic